Línuhönnun virðist nota frekar sérstakar aðferðir við mannaráðningar, því það var hryngt í mig í gær eða fyrradag og boðaður í atvinnuviðtal. Kannski ekkert sérstakt við það ef ég hefði ekki sótt um vinnu þar í október síðastliðnum eða fyrir um 5 og 1/2 mánuði. Þeir sendu auk þess póst á mig fyrir um hálfum mánuði og spurðu um áhuga á starfi þar. Þá sagðist ég vera kominn með vinnu og auk þess ansi langt síðan að ég sótti um hjá þeim. En það stöðvaði þá ekki í að hafa samband líka símleiðis.
Annars var vinnan sem þeir ætluðu að bjóða mér einhver eftirlitsvina á Kárahnjúkasvæðinu.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
NÝTT POLL - NÝTT POLL - NÝTT POLL - NÝTT POLL
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
UPDATE - SAN MARINO
Jæja þá er ég búinn að update-a statistikið... Í þetta skiptið ákvað ég að skipta út LÍNURIT- grafinu svo í stað stiga þá sýnir það í hvaða sætum liðin lenntu í einstökum keppnum og breytinguna á sætaskiptum í hverri keppni.
Annars að þá er það marverðast að það eru komin ný lið á toppinn. Lyngby er dottið af toppnum eftir að hafa verið þar frá upphafi og hefur Rauði Herinn tekið toppsætið. Finnari skaust úr 5 sæti í það annað og Lyngby kemur svo fyrst í 3 sæti og ýtir Hawks niður í 4.
Sama er upp á teningnum í landakeppninni. Útlönd skoruðu mjög vel í þessari keppni og áttu 6 af 7 efstu sætunum. Ekki bara unnu útlönd í fyrsta skipti Ísland heldur náðu þau að hrynda Íslandi af toppnum í samanlögðu.
Annars skoruðu flest stig mun minna en í keppninni á undan. Samt vinningsliðið Prumpudýrin, Renault og Interpol hafa aldrei skorað meira enda voru þau lið í 3 af 4 efstu sætum helgarinnar. Lyngby, Ignis, Bond og Uncle Sam hafa aldrei skorað lægra.
Klikkið ykkur á stat-boxið hér að ofan og sjáið stöðuna og gröfin.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _