Ekki mikill aur.
Þetta er nú ekki mikill peningur sem maður fær til að bæta liðið sitt í leiknum okkar góða. Maður getur næstum ekki breytt neinu. En ætli maður verði ekki bara að reyna að standa sig betur, en það er erfitt þegar maður fær svona lítinn pening. En mér tekst nú samt að vinna ykkur.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
NÝTT NÝTT
Jæja þá er þetta komið í gagnið. Er búinn að gera smá banner hérna efst á síðunni sem virkar einskonar upplýsingabox fyrir okkur. Hérna mun ég setja inn upplýsingar um hvert hlaup. Prufið að klikka á "Hver er hvað", "Gröf og læti" og rollover á "upplýsingar" þar sem er sagt frá hvernig síðan virkar.
Undir "Hver er hvað" er hægt að klikka á mismunandi lið til að sjá hvernig því liði gekk í mismunandi keppnum. Kíkið á og látið mig vita ef þið verðið var við einnhverja vitleysu.
Ef þið sjáið ekkert hérna efst nema hvítann kassa þurfið þið að update-a flash spilarann ykkar. Það gerið þið
HÉR.
Látið mig vita hvort þið hafið gagn og gaman að þessu.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Úrslitin eru loksins kominn í leikinn og mér til mikillar ánægju og auk þess kemur mér þó nokkuð á óvart þá er ég efstur á lista. Ekki amalegt það.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
ÁSTRALÍA
Jæja þá er fyrsta keppnin búin og verð ég nú að viðurkenna að ég var soldið svekktur yfir yfirburðum Ferrari. Vona að þetta verði ekki svona út seasonið. Allavegna held ég að ég hafi ekki skorað mikið.
En ég er að vinna í að setja upp upplýsingar fyrir okkur. Ætti að koma hérna á síðuna innan skamms.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _