MONACO UPDATE
Jæja þá er ég búinn að reikna út úr seinustu keppni og það er engin lygi að lang flestir skoruðu meira í þessari keppni en nokkurntíma áður. Það sést á nýju grafi þar sem heildarstigin eru reiknuð út.
Hawk burstaði þessa keppni og heldur þar með efsta sæti sínu og eykur forskotið. Aldrei hefur nokkurt lið skorað meira í einni keppni.
Finnari nær öðru sæti og stekkur úr því fjórða, það er á kostnað Rauða Hersins sem dettur úr 2 í 3 og Lyngby sem fellur úr 3 í 5. Prumpudýrin ná að feta sig úr 5 í 4.
Ignis stendur í stað í 6 sæti og Interpol fer úr 8 í 7, sem þýðir að Renault (sem var með versta skor sitt hingað til og hefur aðeins verið skorað lægra 3svar áður.
Lullvakur færir sig upp um eitt sæti og skríður hægt og rólega upp listann, er í 8 sæti. Uncle Sam nær loksins að komast úr neðsta sætinu en hefur verið þar frá upphafi sökum þess að hann misti af fyrstu keppni. Hann er nú kominn úr neðsta (12) í það 10. Restina reka Vaclaren í 11 og nýr botnamaður Bond.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
SPAIN KEPPNIN KOMINN Í STATISTIK
Já ég ætla að byrja á því að óska sjálfum mér til hamingju með góðan árangur í þessum hluta og gekk mér svo vel að ég stökk upp frá 4 sæti í það fyrsta í heildarstigum.
Rauði Herinn fellur niður í það 2 og hrindir Finnara í 4. Lyngby stendur í stað í 3 sæti. Lullvakur stekkur úr næstneðsta í það 9. og Renault og Interpol skiptast á 7. og 8. sæti.
Útlönd bæta líka lítið eitt við sig í keppninni ´milli Útlönd - Ísland. Held að Bond007, VacLaren og Ignis sé þar um að kenna þar sem þeir hafa fengið 9, 11 og 12. sætið í seinustu tveim keppnum og einmitt þeim keppnum sem Útlönd hafa unnið.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Eruð þið til í slaginn... búnir að breyta liðum og veðja og allt það???
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
Línuhönnun virðist nota frekar sérstakar aðferðir við mannaráðningar, því það var hryngt í mig í gær eða fyrradag og boðaður í atvinnuviðtal. Kannski ekkert sérstakt við það ef ég hefði ekki sótt um vinnu þar í október síðastliðnum eða fyrir um 5 og 1/2 mánuði. Þeir sendu auk þess póst á mig fyrir um hálfum mánuði og spurðu um áhuga á starfi þar. Þá sagðist ég vera kominn með vinnu og auk þess ansi langt síðan að ég sótti um hjá þeim. En það stöðvaði þá ekki í að hafa samband líka símleiðis.
Annars var vinnan sem þeir ætluðu að bjóða mér einhver eftirlitsvina á Kárahnjúkasvæðinu.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
NÝTT POLL - NÝTT POLL - NÝTT POLL - NÝTT POLL
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _
UPDATE - SAN MARINO
Jæja þá er ég búinn að update-a statistikið... Í þetta skiptið ákvað ég að skipta út LÍNURIT- grafinu svo í stað stiga þá sýnir það í hvaða sætum liðin lenntu í einstökum keppnum og breytinguna á sætaskiptum í hverri keppni.
Annars að þá er það marverðast að það eru komin ný lið á toppinn. Lyngby er dottið af toppnum eftir að hafa verið þar frá upphafi og hefur Rauði Herinn tekið toppsætið. Finnari skaust úr 5 sæti í það annað og Lyngby kemur svo fyrst í 3 sæti og ýtir Hawks niður í 4.
Sama er upp á teningnum í landakeppninni. Útlönd skoruðu mjög vel í þessari keppni og áttu 6 af 7 efstu sætunum. Ekki bara unnu útlönd í fyrsta skipti Ísland heldur náðu þau að hrynda Íslandi af toppnum í samanlögðu.
Annars skoruðu flest stig mun minna en í keppninni á undan. Samt vinningsliðið Prumpudýrin, Renault og Interpol hafa aldrei skorað meira enda voru þau lið í 3 af 4 efstu sætum helgarinnar. Lyngby, Ignis, Bond og Uncle Sam hafa aldrei skorað lægra.
Klikkið ykkur á stat-boxið hér að ofan og sjáið stöðuna og gröfin.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _